Hoppa yfir valmynd

Úrskurðir og álit


Úrskurðarnefnd um ..
Sýni 801-1000 af 1198 niðurstöðum.

Áskriftir

  • A-378/2011. Úrskurður frá 11. október 2011

    Kærð var sú ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands að synja um afhendingu afrita af öllum gildandi samningum stofnunarinnar um sértæka heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega voru tilgreindir samningar stofnunarinnar við sveitarfélögin Árborg og Hveragerðisbæ. Tilgreining máls eða gagna í máli. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Aðgangur veittur að hluta, frávísun.


  • A-380/2011. Úrskurður frá 11. október 2011

    Kærð var sú ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Vesturlands að synja um afhendingu afrita af öllum gildandi samningum stofnunarinnar um sértæka heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega var tilgreindur samningur stofnunarinnar við Norðurál. Tilgreining máls eða gagna í máli. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta, frávísun.


  • A-379/2011. Úrskurður frá 11. október 2011

    Kærð var sú ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Austurlands að synja um afhendingu afrita af öllum gildandi samningum stofnunarinnar um sértæka heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega var tilgreindur samningur stofnunarinnar við Alcoa Fjarðarál sf. Tilgreining máls eða gagna í máli. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta, frávísun.


  • A-382/2011. Úrskurður frá 11. október 2011

    Kærð var afgreiðsla ríkislögmanns á beiðni um gögn um bann Fjármálaeftirlitsins við viðskiptum með hlutabréf í Glitni banka þann 6. október 2008. Kærufrestur. Kæruleiðbeiningar. Frávísun.


  • A-381/2011. Úrskurður frá 14. október 2011

    Kærð var sú ákvörðun landskjörstjórnar að synja um aðgang að gögnum um niðurstöðu talningar atkvæða í kosningum til stjórnlagaþings. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.


  • A-383/2011. Úrskurður frá 11. október 2011

    Kærð var sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að synja um afrit af leyfum til veiða á háhyrningum frá árinu 1983 og tengdum gögnum. Tilgreining máls eða gagna í máli.  Frávísun.


  • A-377B/2011. Úrskurður frá 14. desember 2011

    Farið fram á endurupptöku máls nr. A-377/2011. Beiðni um endurupptöku máls. Endurupptöku hafnað.


  • A-377/2011. Úrskurður frá 16. september 2011

    Kærð var sú ákvörðun heilbrigðisráðuneytisins að synja um aðgang að samningi við GlaxoSmithKline ehf. um kaup á bóluefni við svínaflensu o.fl. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-376/2011. Úrskurður frá 16. september 2011

    Kærð var sú ákvörðun utanríkisráðuneytisins að synja um aðgang að gögnum sem orðið hefðu til eftir að kærandi sendi tiltekna kvörtun til Eftirlitsstofnunar Fríverslunarsamtaka Evrópu og vörðuðu það málefni sem kvörtunin beindist að. Aðili máls. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-386/2011. Úrskurður frá 14. október 2011

    Kærð var sú ákvörðun forsætisráðuneytisins að synja um afhendingu bréfa forseta Íslands til forsætisráðherra, dags. 29. júní og 13. júlí 2010. Gögn í vörslum stjórnvalds. Aðgangur veittur.


  • A-373/2011. Úrskurður frá 28. júní 2011

    Kærð var sú ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur að synja um aðgang að gögnum er varða kaup Magma Energy Sweden AB á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku hf. Gildissvið upplýsingalaga. Afmörkun kæruefnis. Gildissvið laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Frávísun.


  • A-374/2011. Úrskurður frá 28. júní 2011

    Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um kaup lífeyrissjóða á íbúðabréfum í eigu ríkissjóðs. Fyrirliggjandi gögn. Vinnuskjöl.Synjað um aðgang.


  • A-375/2011. Úrskurður frá 28. júní 2011

    Kærð var sú afgreiðsla Fjölbrautaskólans í Ármúla að synja um aðgang að gömlum prófum nema greiddar væru 500 kr. fyrir ljósrit af hverju prófi. Gjaldtaka fyrir ljósrit. Aðgangur veittur skv. skilyrðum gjaldskrár nr. 306/2009.


  • A-372/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011

    Kærð var sú ákvörðun umboðsmanns Alþingis að synja um afhendingu korts af deiliskipulagssvæði sem kvörtun kæranda til umboðsmanns Alþingis laut að. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.


  • A-369/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011

    Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að synja um fullan aðgang að skýrslu dagsettri 2. nóvember sem nefnist: „Sérstök athugun, að beiðni stjórnar Fjármálaeftirlitsins, á atriðum er varða hæfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins.“ Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-370/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011

    Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að synja um aðgang að svörum fjögurra fjármálafyrirtækja við fyrirspurn stofnunarinnar. Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-371/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011

    Kærð var sú ákvörðun Blönduósbæjar að synja um afhendingu afrits af ráðningasamningum sveitarfélagsins við sviðsstjóra tæknideildar, skólastjóra grunnskóla, fjármálastjóra, bæjartæknifræðing, leikskólastjóra og bæjarstjóra sveitarfélagsins. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Ljósrit. Aðgangur veittur.


  • A-367/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011

    Kærð var sú ákvörðun Borgarskjalasafns Reykjavíkur að synja kæranda um aðgang að ýmsum gögnum um látinn föður sinn. Aðili máls. Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.


  • A-368/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011

    Kærð var sú ákvörðun Barnaverndarstofu að synja um aðgang að gögnum er varða umsókn barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar um meðferð fyrir dóttur kæranda á meðferðarheimilinu A. Gildissvið upplýsingalaga. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.


  • A-366/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011

    Kærð var sú ákvörðun Háskóla Íslands að synja um aðgang að listum yfir útreiknuð rannsóknastig háskólakennara við skólann fyrir árin 2001-2009. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Frávísun.


  • A-365/2011. Úrskurður frá 15. apríl 2011

    Kærð var sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að synja um aðgang að minnisblaði um viðbrögð við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna nr. 1306/2004 frá 24. október 2007. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-363/2011B. Úrskurður frá 27. apríl 2011

    Farið var fram á það við úrskurðarnefnd um upplýsingamál að réttaráhrifum úrskurðar nefndarinnar nr. A-363/2011 yrði frestað. Frestun réttaráhrifa hafnað.


  • A-363/2011. Úrskurður frá 15. apríl 2011

    Kærð var sú ákvörðun efnahags- og viðskiptaráðuneytisins að synja um aðgang að drögum að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um innistæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999. Mikilvægir almannahagsmunir vegna fyrirhugaðra ráðstafana eða prófa á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur.


  • A-364/2011. Úrskurður frá 15. apríl 2011

    Kærð var sú ákvörðun Fornleifaverndar ríkisins að synja um aðgang að úttekt á kostnaði af viðhaldi Stangar í Þjórsárdal. Vinnuskjöl. Synjun staðfest.


  • A-362/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011

    Kærður var dráttur og synjun Samkeppniseftirlitsins á beiðni um aðgang upplýsingum um rannsókn eftirlitsins á meintu ólögmætu samráði milli Hátækni ehf. og Tæknivara ehf./Skipta hf. á heildsölumarkaði fyrir farsíma.  Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Synjun staðfest.


  • A-357/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011

    Kærð var sú ákvörðun iðnaðarráðuneytisins að synja um afhendingu bréfs forstjóra Magma Energy til iðnaðarráðherra í heild sinni. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-359/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011

    Kærð var sú ákvörðun Landvirkjunar að synja um aðgang að gögnum um samskipti fyrirtækisins við Magma Energy, Geysi Green Energy, HS Orku o.fl. Gildissvið laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Fyrirliggjandi gögn.Frávísun.


  • A-358/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011

    Kærð var sú ákvörðun iðnaðarráðuneytisins að synja um afhendingu bréfs forstjóra Magma Energy til iðnaðarráðherra í heild sinni. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-360/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011

    Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um beiðni Magma Energy Sweden AB um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál, fjölda veittra undanþága frá því reglurnar tóku gildi og afrit af ákvörðunum þar sem fallist var á beiðni um undanþágu. Þagnarskylda. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-361/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011

    Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um beiðni Magma Energy Sweden AB um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál, fjölda veittra undanþága frá því reglurnar tóku gildi og afrit af ákvörðunum þar sem fallist var á beiðni um undanþágu. Þagnarskylda. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-356/2011. Úrskurður frá 26. janúar 2011

    Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um beiðni Magma Energy Sweden AB um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál í tengslum við kaup á hlutabréfum Geysis Green Energy í HS Orku. Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Synjun staðfest.


  • A-355/2011. Úrskurður 26. janúar 2011

    Kærður var dráttur og synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um afrit af þremur bréfum til Íslandsbanka hf., NBI hf. og Nýja Kaupþings banka hf. sem vörðuðu hæfi starfsmanna bankanna. Þagnarskylda. Einkamálefni einstaklinga. Synjun staðfest.


  • A-352/2011. Úrskurður frá 10. janúar 2011

    Kærð var sú ákvörðun sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps að synja um aðgang að bréfi sem sent var sveitarstjórninni og varðaði jörð kæranda í hreppnum. Kæruheimild. Aðili máls. Aðgangur veittur, frávísun að hluta.


  • A-351/20110. Úrskurður frá 10. janúar 2011

    Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að synja um afhendingu gagna um aðdraganda þess að Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki hf. var færður undir skilanefnd. Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja.Aðgangur veittur að hluta.


  • A-354/2011. Úrskurður frá 10. janúar 2011

    Kærð var sú ákvörðun Fiskistofu að synja um aðgang að upplýsingum um einstakar landanir erlendra skipa á uppsjávarfiski á Íslandi á árinu 2010 ásamt upplýsingum um hvað greitt var fyrir aflann úr hverri löndun, sundurliðað eftir því til hvers konar vinnslu aflinn fór og hver kaupandi aflans var í hvert sinn. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Þagnarskylda.Aðgangur veittur að hluta.


  • A-353/2011. Úrskurður frá 10. janúar 2011

    Kærð var sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að synja um aðgang að tveimur minnisblöðum ráðuneytisins um jörðina [A] og [B] í Suður-Þingeyjarsýslu. Vinnuskjöl. Synjun staðfest.


  • A-350/2010. Úrskurður frá 20. desember 2010

    Kærð var ákvörðun Seltjarnarnesbæjar um synjun á beiðni um aðgang að samkomulagi milli Seltjarnarnesbæjar og Íslenskra aðalverktaka hf. um skipti hluta af svokallaðri „Lýsislóð“ og lóðarhluta við Hrólfsskálamel ásamt viðaukum og fylgiskjölum. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-349/2010. Úrskurður frá 20. desember 2010

      Kærð var ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um synjun á beiðni um aðgang að athugasemdum sem bárust sveitarfélaginu eftir forstigskynningu á deiliskipulagstillögu og samantekt athugasemda sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar. Stjórnvaldsákvörðun. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum. Frávísun.


  • A-346/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010

    Kærð var sú ákvörðun Íslandsstofu að synja um aðgang að gögnum um ráðningu framkvæmdastjóra Íslandsstofu. Gildissvið upplýsingalaga. Umsóknir um störf hjá ríki eða sveitarfélögum og gögn sem þær varða. Aðgangur veittur að upplýsingum um nöfn, heimilisföng og starfsheiti umsækjenda.


  • A-345/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010

    Kærð var sú ákvörðun Biskupsstofu að synja um aðgang að bréfi X til Kirkjuráðs. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.


  • A-347/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010

     Kærð var sú ákvörðun matsnefndar samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði nr. 61/2006 að synja um afhendingu sundurliðaðra útreikningsforsendna hverrar jarðar í veiðifélagi sem matsnefndin notaði við arðskrármat sitt. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum. Frávísun.


  • A-348/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010

     Kærður var dráttur á afgreiðslu Þjóðskrár Íslands á beiðni um afhendingu upplýsinga og afrita gagna sem leiddu til ákvörðunar um breytta skráningu á fasteignamati tveggja eignarhluta kæranda. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum. Frávísun.


  • A-343/2010. Úrskurður frá 1. september 2010

    Kærð var sú ákvörðun Reykjavíkurborgar, Borgarskjalasafns Reykjavíkur,  að synja dætrum Y, sem var látinn, um aðgang að gögnum er varða barnaverndarmál föður þeirra og vistun hans á vistheimilinu A. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-344/2010. Úrskurður frá 1. september 2010

    Kærð var synjun samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Flugstoða ohf., nú Isavia ohf., á beiðni um afhendingu gagna um viðskiptaáætlun um byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Gildissvið upplýsingalaga. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Synjun staðfest.


  • A-342/2010. Úrskurður frá 29. júlí 2010

      Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni um afhendingu gagna er vörðuðu útboð Ríkiskaupa f.h. utanríkisráðuneytisins, á ljósleiðurum NATO og rekstur þeirra. Þjóðréttarlegar skuldbindingar. Vinnuskjöl. Öryggi og varnir ríkisins. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-341/2010. Úrskurður frá 7. júlí 2010

    Kærð var afgreiðsla Reykjavíkurborgar, Borgarskjalasafns Reykjavíkur, á beiðni um afrit af gögnum í fórum safnsins um afskipti barnaverndaryfirvalda af kæranda og vegna dvalar hans sem barns á vistheimili. Aðili máls. Ljósrit. Gögn ekki í vörslum stjórnvalds. Frávísun


  • A-339/2010. Úrskurður frá 7. júlí 2010

      Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um afhendingu gagna og upplýsinga um það hvort peningamarkaðsinnlán hefðu verið færð milli ýmissa banka og sparisjóðs. Einnig var kærð synjun á beiðni um afhendingu afrita af bréfum sem Fjármálaeftirlitið hefði sent hlutaðeigandi aðilum um staðfestingu á millifærslu peningamarkaðsinnlánanna. Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-340/2010. Úrskurður frá 7. júlí 2010

    Kærð var ákvörðun Hafnarfjarðarkaupstaðar um synjun á afhendingu afrits af bréfi skólastjóra til starfsmanna skólans. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Skylda til að skrá mál og varðveita málsgögn. Aðgangur veittur.


  • A-336/2010. Úrskurður frá 1. júní 2010

    Kærð var ákvörðun Landsvirkjunar um synjun á afhendingu afrita af öllum samningum sem Landsvirkjun hafði gert við eigendur landareigna við neðrihluta Þjórsár á áhrifasvæði þeirra þriggja virkjana sem þar voru fyrirhugaðar, og tengdust virkjunaráformunum með einum eða öðrum hætti. Gildissvið laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Frávísun.


  • A-338/2010. Úrskurður frá 1. júní 2010

    Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að minnisblaði til forstjóra FME er laut m.a. að því álitaefni hvað væru innlán. Þagnarskylda. Synjun staðfest.


  • A-337/2010. Úrskurður frá 1. júní 2010

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni um afhendingu gagna er vörðuðu útboð Ríkiskaupa f.h. utanríkisráðuneytisins, á ljósleiðurum NATO og rekstur þeirra. Aðili máls. Vinnuskjöl. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-334/2010. Úrskurður frá 29. apríl 2010

    Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að skýrslu PriceWaterhouseCoopers vegna athugunar á tilteknum þáttum í starfsemi [Y banka]. Aðili máls. Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Aðgangur veittur að hluta.


  • A 335/2010. Úrskurður frá 29. apríl 2010

    Kærð var sú ákvörðun Sambands íslenskra sveitarfélaga að synja um upplýsingar um nöfn umsækjanda um starf sérfræðings í félagsþjónustu sveitarfélaga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og nöfn þeirra umsækjenda sem boðaðir voru í viðtal vegna starfsins. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Stjórnvaldsákvörðun


  • A 332/2010. Úrskurður frá 25. mars 2010

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins, forsætisráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins á afhendingu afrita eða uppskrifta af símtölum utanríkis-, forsætis- og fjármálaráðherra við erlenda starfsbræður sína. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun að hluta. Synjun staðfest.


  • A 333/2010. Úrskurður frá 25. mars 2010

    Kærð var sú ákvörðun flugráðs að synja beiðni um aðgang að afriti reiknings gefnum út af [A] vegna jólveislu flugráðs. Aðili máls. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A 331/2010. Úrskurður frá 25. mars 2010

      Kært var að Reykjavíkurborg hefði ekki veitt upplýsingar um þá þjónustu sem öldruðum stendur til boða hjá borginni. Einnig var óskað eftir því að gefin yrðu upp nöfn og starfsheiti starfsmanna á fjármálaskrifstofu borgarinnar. Aðili máls. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Stjórnvaldsákvörðun. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun.


  • A 329/2010. Úrskurður frá 18. febrúar 2010

    Kærður var dráttur á svari við beiðni um aðgang að gögnum frá Háskóla Íslands. Kærandi aðili að stjórnsýslumáli. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Frávísun.


  • A 328B/2010. Úrskurður frá 11. febrúar 2010

    Farið var fram á það við úrskurðarnefnd um upplýsingamál að úrskurður nefndarinnar nr. A-328/2010 yrði endurupptekinn og leiðréttur. Til vara var farið fram á að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað. Beiðni um endurupptöku máls. Frestun réttaráhrifa. Endurupptöku hafnað. Leiðréttingu hafnað. Frestun réttaráhrifa hafnað.


  • A 328/2010. Úrskurður frá 28. janúar 2010

    Kærð var ákvörðun Ríkiskaupa, Austurhafnar TR ehf. og Reykjavíkurborgar að hafna beiðni um afrit af öllum samningum og viðaukum sem gerðir hafa verið eftir 17. júlí 2008 og varða samninga ríkisins, Reykjavíkurborgar og Austurhafnar TR ehf. um byggingu tónlistarhúss við Austurhöfn í Reykjavík og ekki hefur verið fjallað um í kærumálum A-233/2006, 228-2006 og A-307-2009. Gildissvið upplýsingalaga Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A 327/2010. Úrskurður frá 28. janúar 2010

    Kærð var ákvörðunsveitarfélagsins Borgarbyggðar að synja um afhendingu afrita tölvupósta er fóru á milli [A] og [B] héraðsdómslögmanns. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Synjun staðfest.


  • A 330/2010. Úrskurður frá 25. janúar 2010

      Kærð var ákvörðun Varnarmálastofnunar Íslands um að synja beiðni um aðgang að tilteknum hlutum samnings Varnarmálastofnunar Íslands og [B] sem og öðrum skjölum eða gögnum sem mál það varðaði hjá stofnuninni. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila Vinnuskjöl. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.


  • A 326/2009. Úrskurður frá 13. janúar 2010

    Kærð var sú þá ákvörðun skrifstofu forseta Íslands að synja um afhendingu 17 bréfa sem tilgreind eru í svari embættisins til rannsóknarnefndar Alþingis, og afhent hafa verið rannsóknarnefndinni. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Synjun staðfest.


  • A 325/2009. Úrskurður frá 13. janúar 2010

    Kærð var sú þá ákvörðun skrifstofu forseta Íslands að synja um afhendingu 17 bréfa sem tilgreind eru í svari embættisins til rannsóknarnefndar Alþingis, og afhent hafa verið rannsóknarnefndinni. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Synjun staðfest.


  • A 322/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

    Kærð var ákvörðun Matvælastofnunar um að synja beiðni um aðgang að öllum gögnum í fórum stofnunarinnar er vörðuðu salmonellusýkingar í svínum eða afurðum og úrgangi frá tilteknu svínabúi. Aðgangur veittur.


  • A 319/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

    Kærður var óhæfilegur dráttur á afgreiðslu Seðlabanka Íslands á beiðni um gögn. Gögn er varða tiltekið mál. Tilgreining máls eða gagna í máli. Synjun staðfest.


  • A 320/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

    Kærð var synjun Reykjavíkurborgar á afhendingu gagna varðandi EES útboð nr. 12165 og til urðu eftir að tilkynnt var um val á viðsemjanda. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur


  • A 318/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

    Kærð var sú ákvörðun sýslumannsins á Sauðárkróki að synja um aðgang að tveimur skýrslum sem gerðar voru af starfsmönnum ríkislögreglustjóra um mitt ár eða síðari hluta árs 2007 varðandi málefni lögreglunnar á Sauðárkróki. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Kærufrestur. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Tilgreining máls eða gagna í máli. Aðgangur veittur að hluta.


  • A 321/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

    Kærð var ákvörðun Matvælastofnunar um að synja beiðni um aðgang að gögnum. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A 324/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

    Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að neita um upplýsingar er varða aðdraganda þess að sett var skilanefnd yfir [A]. Frávísun. Synjun staðfest.


  • A 323/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009

    Kærð var ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að og afriti af gögnum sem sýndu afgreiðslu og niðurstöðu Seðlabankans varðandi lánsbeiðni forráðamanna [A] frá 26. september 2008 svo og af lánsbeiðninni sjálfri. Synjun staðfest.


  • A 316/2009. Úrskurður frá 23. nóvember 2009

    Kærð var sú ákvörðun stjórnar fjarskiptasjóðs að synja beiðni um aðgang að gögnum er varða samning fjarskiptasjóðs og tiltekins fyrirtækis um háhraðatengingar. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.


  • A 317/2009. Úrskurður frá 23. nóvember 2009

    Kærð var sú ákvörðun forsætisráðuneytisins að synja beiðni um aðgang að gögnum er tengdust ráðgjöf ríkislögmanns um lögfræðileg álitaefni er lytu að framkvæmd laga nr. 125/2008 um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Mikilvægir almannahagsmunir vegna fyrirhugaðra ráðstafana eða prófa á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Aðgangur veittur.


  • A 315/2009. Úrskurður frá 10. nóvember 2009

    Kærð var sú ákvörðun sveitarfélagsins Borgarbyggðar að synja um aðgang að gögnum sem varpað gætu ljósi á lóðarmörk sem kærandi taldi að samið hefði verið um. Aðili máls. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Einkamálefni einstaklinga. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Vinnuskjöl. Frávísun. Aðgangur veittur að hluta.


  • A 312/2009 Úrskurður frá 24. september 2009

    Kærð var sú ákvörðun Alþingis að afhenda ekki upplýsingar um sundurliðaðar kostnaðargreiðslur til þingmanna af almannafé. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.


  • A 311/2009 Úrskurður frá 24. september 2009

    Kærð var sú ákvörðun félags- og tryggingamálaráðuneytisins að afhenda einungis upplýsingar um nöfn og stöðu umsækjenda um stöðu framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík en ekki upplýsingar um menntun umsækjenda um stöðuna. Umsóknir um störf hjá ríki eða sveitarfélögum og gögn sem þær varða. Synjun staðfest.


  • A 314/2009 Úrskurður frá 30. september 2009

    Kærð var sú ákvörðun skilanefndar Landsbanka Íslands hf. að svara ekki beiðni um afhendingu á upplýsingum og gögnum um það hvort og þá hvenær ákvörðun hafi verið tekin af skilanefndinni um að framselja tiltekinn lánasamning milli kæranda og Landsbanka Íslands hf. til NIB hf. ásamt öðrum gögnum varðandi lánasamninginn. Frávísun.


  • A 313/2009 Úrskurður frá 24. september 2009

    Kærð var synjun sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps á beiðni um að afhent afrit af öllum reikningum sem færðir hefðu verið til gjalda á ?rotþróargjaldareikning? hjá Svalbarðsstrandarhreppi árin 2005 til 2008. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-309/2009 úrskurður frá 14. ágúst 2009

    Kærð var synjun Austurhafnar-TR ehf. á beiðni um aðgang að upplýsingum um hversu mikið Austurhöfn-TR ehf. greiðir eða ábyrgist vegna yfirtöku á Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu á austurbakka Reykjavíkurhafnar, að undanskildum þeim 14,5 milljörðum króna sem ríkið og Reykjavíkurborg hafa þegar lýst yfir að þau muni láta renna til hússins. Kæru vísað frá.


  • A 307/2009B úrskurður frá 14. ágúst 2009

    Með bréfi, dags. 22. júlí 2009, fóru Ríkiskaup þess á leit við úrskurðarnefnd um upplýsingamál, með vísan til 18. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, að réttaráhrifum úrskurðar nr. A-307/2009, sem kveðinn var upp 16. sama mánaðar, yrði frestað. Kröfu Ríkiskaupa um að frestað verði réttaráhrifum úrskurðar frá 16. júlí 2009 í máli nr. A-307/2009 er hafnað.


  • A-308/2009 úrskurður frá 14. ágúst 2009

    Kærð var ákvörðun Reykjavíkurborgar að synja afhendingu gagna sem lögð voru fram á fundi borgarráðs 28. maí 2009 í tilefni af fyrirspurn fulltrúa í borgarráði frá 14. þess sama mánaðar. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-310/2009 úrskurður frá 14. ágúst 2009

    Kærð ákvörðun viðskiptaráðuneytisins frá 27. apríl s.á. þess efnis að synja um aðgang að upplýsingum um tillögur nefndar er fara átti yfir hvernig innleiðingu Íslands á tilskipun Evrópusambandsins um innlánstryggingar væri háttað og þáverandi viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, skipaði vorið 2007. Synjun staðfest.


  • A 307/2009 Úrskurður frá 16. júlí 2009

    Kærð var synjun Ríkiskaupa og Austurhafnar-TR ehf. á beiðni um afhendingu afrits af tilboði og öðrum fylgigögnum sem og viðaukum ef einhverjir væru með samningi sem Ríkiskaup og Austurhöfn-TR ehf. gerðu við [A] 9. mars 2006. Aðili máls. Gildissvið upplýsingalaga. Gögn er varða tiltekið mál. Kröfugerð kæranda. Mikilvægir almannahagsmunir vegna viðskipta. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Vinnuskjöl. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-306/2009 úrskurður frá 25. júní 2009

    Kærð var ákvörðun Skipulagsstofnunarað synja um afrit af umsögn stofnunarinnar til Borgarbyggðar, dags. 10. mars 2009, við beiðni Borgarbyggðar um heimild til að auglýsa deiliskipulagsbreytingu Stuttárbotnasvæðisins í Húsafelli í B-deild Stjórnartíðinda. Máli vísað frá.


  • A 304/2009 Úrskurður frá 26. maí 2009

    Kærð var synjun Fasteignamats ríkisins, nú Fasteignaskrá Íslands, á beiðni [A] um aðgang að upplýsingum um föst laun og önnur föst kjör [B], vegna starfa hans hjá Fasteignamati ríkisins, eins og þau voru í maí 2007. Þá segir í kærunni að kærður sé óhæfilegur dráttur á afgreiðslu Fasteignamats ríkisins á afgreiðslu á beiðni kæranda. Aðgangur veittur að hluta. Frávísun.


  • A-305/2009 úrskurður frá 25. júní 2009

    Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um að synja um aðgang að öllum gögnum, skráðum í skjalastöð Seðlabanka Íslands, er vörðuðu og lögðu grunn að tillögu formanns bankastjórnar Seðlabankans sem lögð hafi verið fram á fundi seðlabankastjóra, forsætisráðherra, forstjóra og formanns stjórnar [B] að kvöldi 28. september 2008 um að Seðlabankinn og/eða ríkið myndu kaupa 75% hlutafjár í [B]. Synjun staðfest.


  • A 303/2009 Úrskurður frá 26. maí 2009

    Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um afhendingu afrits af ráðningarsamningi [A], auk skjalfestra breytinga sem gerðar hefðu verið á samningnum, bréfi viðskiptaráðherra til stjórnar Fjármálaeftirlitsins um að hún gengi frá starfslokum við [A] og segði af sér í kjölfarið, og starfslokasamningi sem stjórn Fjármálaeftirlitsins hefði gert við [A]. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Framsending. Mikilvægir almannahagsmunir vegna viðskipta. Frávísun. Aðgangur veittur.


  • A 302/2009. Úrskurður frá 13. maí 2009

    Kærð var synjun Mosfellsbæjar á beiðni um aðgang að gögnum vegna skipulags hverfisverndar og framkvæmda í tengslum við uppbyggingu í Helgafellslandi í Mosfellsbæ. Upplýsingar um umhverfismál. Aðgangur veittur.


  • A 301/2009 Úrskurður frá 4. maí 2009

    Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um að fá aðgang að minnisblaði [?] um símtal hans við forsætisráðherra Íslands. Gildissvið upplýsingalaga. Gögn ekki í vörslum stjórnvalds. Frávísun


  • A 300/2009 Úrskurður frá 4. maí 2009

    Kærð var synjun Súðavíkurhrepps um að synja um aðgang að lögfræðiáliti sem sveitarfélagið aflaði í tilefni af kröfu kærenda um greiðslu útlagðs lögmannskostnaðar vegna stjórnsýslukæra á hendur sveitarfélaginu í tengslum við ákvarðanir þess um útgáfu tiltekinna byggingarleyfa. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Gildissvið upplýsingalaga. Synjun staðfest.


  • A 299/2009 Úrskurður frá 4. maí 2009

    Kærð var synjun Landmælinga Íslands á afhendingu skýrslu vinnusálfræðings sem unnin var vegna samskiptavanda sem upp kom innan stofnunarinnar. Afrit af gögnum. Gildissvið upplýsingalaga. Trúnaðarmál. Aðgangur veittur


  • A 297/2009 Úrskurður frá 19. mars 2009

    Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um aðgang að skýrslu um ferð fulltrúa bankans til Lundúna í febrúar 2008. Mál í stjórnsýslunni. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls eða gagna í máli. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur.


  • A 298/2009 Úrskurður frá 19. mars 2009

    Kærð var synjun um upplýsingar um samsetningu innlána í Icesave-sjóðum Landsbankans sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar færu með á fund um lausn og lánveitingar vegna Icesave. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur


  • A 296/2009 Úrskurður frá 19. mars 2009

    Kærður var skortur á svörum Seðlabanka Íslands við beiðni um aðgang að minnismiðum sem [A] hefði vísað til í viðtali við [X]. Tilgreining máls eða gagna í máli. Vinnuskjöl. Synjun staðfest.


  • A 295/2009 Úrskurður frá 19. mars 2009

    Kærð var afgreiðslu Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík á beiðni um upplýsingar og afrit af reikningum vegna heimilissjóðs og fæðispeninga á áfangastaðnum [X]. Tilgreining máls eða gagna í máli. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun.


  • A 294/2009 Úrskurður frá 29. janúar 2009

    Kærð var synjun synjun Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar á að veita kæranda aðgang að gögnum frá dvalarheimilinu Seljahlíð um ömmu hans og afa, [A] og [B]. Einstaklegir hagsmunir umfram aðra. Aðgangur veittur.


  • A 293/2009 Úrskurður frá 29. janúar 2009

    Kærð var synjun Flugmálastjórnar Íslands á beiðni um afhendingu afrits af viðbúnaðaráætlunum Flugstoða ohf. og Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli samkvæmt gr. 8.2 í viðauka I með reglugerð nr. 535/2006, um starfsleyfi flugleiðsöguþjónustu. Afmörkun kæruefnis. Mikilvægir almannahagsmunir vegna fyrirhugaðra ráðstafana eða prófa á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Vinnuskjöl. Þagnarskylda. Aðgangur veittur að hluta.


  • A 292/2008 Úrskurður frá 22. desember 2008

    Kærð voru ófullnægjandi svör Mosfellsbæjar við erindum þar sem óskað var aðgangs að gögnum vegna ákvarðanatöku bæjarins um lagningu tengibrautar frá Helgafellslandi um Álafossveg að Vesturlandsvegi. Kæruheimild. Frávísun.


  • A 290/2008 Úrskurður frá 19. desember 2008

    Kærð var synjun Nýja Landsbankans hf. (nú NBI hf.) á beiðni um upplýsingar um laun bankastjóra og annarra stjórnenda bankans. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.


  • A 289/2008 Úrskurður frá 19. desember 2008

    Kærð var synjun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá sama degi um að veita kæranda upplýsingar um hve mörg mál hafi formlega verið látin niður falla mánuðina janúar, febrúar og mars 2008, sundurliðaðar eftir brotaflokkum. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun.


  • A 291/2008 Úrskurður frá 19. desember 2008

    Kærð voru viðbrögð og svör prófasts [X-prófastsdæmis], biskups Íslands, starfsfólks [Y-kirkju] og starfsfólks Biskupsstofu við beiðni um ýmsar upplýsingar. Gildissvið upplýsingalaga. Kæruheimild. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.


  • A 287/2008 Úrskurður frá 19. ágúst 2008

    Kærð var synjun Reykjavíkurborgar á aðgangi að upplýsingum um laun starfsmanna Reykjavíkurborgar, fjölda þeirra í hverjum launaflokki fyrir sig, flokkað eftir kyni. Afmörkun kæruefnis. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 286/2008 Úrskurður frá 19. ágúst 2008

    Kærð var synjun Heilbrigðisnefndar Suðurlands á beiðni um upplýsingar um allar ferðir starfsmanna embættisins til skoðunar og eftirlits varðandi [A] síðustu 18 mánuði auk niðurstaðna þessara heimsókna og skýrslna þar að lútandi. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Vinnuskjöl. Þagnarskylda. Aðgangur veittur.


  • A 288/2008 Úrskurður frá 19. ágúst 2008

    Kærð var synjun Fasteignamats ríkisins á beiðni um aðgang að sundurliðuðum upplýsingum um föst laun og önnur föst kjör [A] vegna starfa hans hjá Fasteignamati ríkisins eins og þau voru í maí 2007. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Aðgangur veittur.


  • A 285/2008 Úrskurður frá 29. júlí 2008

    Kærð var synjun synjun Flugstoða ohf. á beiðni um afhendingu samnings sem Flugstoðir ohf. og [A] undirrituðu 1. febrúar 2008 um rekstur flugvélar Flugstoða og framkvæmd flugverkefna sem henni fylgja. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.


  • A 281/2008 Úrskurður frá 29. júlí 2008

    Kærð var synjun Vinnueftirlits ríkisins á beiðni um afhendingu gagna varðandi stórslysavarnir og umfjöllun um bruna í ammoníakskúlu Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi á páskadag 1990 og gagna sem tengjast sprengingu árið 2001 í ammoníakshúsi verksmiðjunnar. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Þagnarskylda. Aðgangur veittur að hluta.


  • A 282/2008 Úrskurður frá 29. júlí 2008

    Kærð var synjun heilbrigðisráðuneytisins á beiðni um fjölda starfslokasamninga sem gerðir hefðu verið hjá ráðuneytinu frá áramótum 1995/1996 og hversu mikið hver þeirra kostaði ráðuneytið. Kæruheimild. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Fávísun.


  • A 283/2008 Úrskurður frá 29. júlí 2008

    Kærð var synjun Borgarskjalasafns á að veita kæranda aðgang að gögnum á nafni föður hans vegna fjárhagsaðstoðar við hann. Aðstandendur sem aðilar máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Lögvarðir hagsmunir kæranda. Synjun staðfest.


  • A 284/2008 Úrskurður frá 29. júlí 2008

    Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins um að veita aðgang að þremur ákvörðunum stofnunarinnar um heimildir nánar tilgreindra aðila til að eignast virkan hlut í fjármálafyrirtækjum Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Þagnarskylda. Synjun staðfest.


  • A 280/2008 Úrskurður frá 4. júní 2008

    Kærð var synjun Byggðastofnunar á beiðni um aðgang að fundargerð og fleiri gögnum vegna lánveitingar Byggðastofnunar til sjávarútvegsfyrirtækisins [B] ehf. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Synjun staðfest.


  • A 279/2008B Úrskurður frá 4. júní 2008

    Óskað var eftir frestun á réttaráhrifum úrskurðar nr. A-279/2008. Kærufrestur. Frávísun.


  • A-277/2008C Úrskurður frá 5. maí 2008

    Krafist var endurupptöku úrskurðar nr. A-277/2008, sem kveðinn var upp 11. mars 2008. Aðili máls. Frávísun.


  • A 278/2008 Úrskurður frá 5. maí 2008

    Kærð var synjun Landspítala-háskólasjúkrahúss á beiðni um að fá afhent afrit af öllum samningum sjúkrahússins við þrjár tilgreindar starfsmannaleigur og reikningum sem þær hefðu gert spítalanum. Gildissvið upplýsingalaga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskipta­hagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Trúnaðarmál. Aðgangur veittur að hluta. Synjun að hluta.


  • A 279/2008 Úrskurður frá 14. maí 2008

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni um afhendingu gagna sem útbúin hefðu verið vegna samskipta ráðuneytisins og Ríkisendurskoðunar varðandi athugun Ríkisendurskoðunar á vatnsleka á varnarsvæðinu í Keflavík. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Ríkisendurskoðun. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur að hluta. Synjun að hluta.


  • A-277/2008B. Úrskurður frá 18. mars 2008.

    Krafist var frestunar á réttaráhrifum úrskurðar nr. A-277/2008, sem kveðinn var upp 11. mars 2008. Frestun réttaráhrifa. Kröfu hafnað.


  • A 277/2008 Úrskurður frá 11. mars 2008

    Kærð var synjun Ríkisútvarpsins ohf. á beiðni um aðgang að upplýsingum um mánaðarlaun [X] og [Y] fyrir septembermánuð 2007. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir almannahagsmunir vegna viðskipta. Aðgangur veittur.


  • A 276/2008 Úrskurður frá 26. febrúar 2008

    Kærð var synjun menntamálaráðuneytisins um aðgang að og afrit af öllum skjölum og gögnum sem væru í vörslu ráðuneytisins vegna óskar og ákvörðunar um að Menntaskólinn við Hamrahlíð gæti farið fram á að nemandi næði að lágmarki 10 einingum á önn til að færast yfir á næstu önn. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frávísun.


  • A 275/2008 Úrskurður frá 26. febrúar 2008

    Kærð var sú ákvörðun stjórnar Persónuverndar að hafna beiðni kæranda um að látið verði hjá líða að birta á heimasíðu Persónuverndar ákvörðun stjórnar stofnunarinnar nr. [X]. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frávísun


  • A 271/2007 Úrskurður frá 18. desember 2007

    Kærð var synjun Reykjavíkurborgar á beiðni kæranda um aðgang að staðfestri launaáætlun og/eða afriti af launaáætlun, sem nefnd hefði verið við kæranda og honum sýnd í atvinnuviðtali. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Tilgreining máls eða gagna í máli. Frávísun.


  • A 273/2007 Úrskurður frá 21. desember 2007

    Kærð var synjun Orkuveitu Reykjavíkur á beiðni um upplýsingar vegna dótturfyrirtækis orkuveitunnar, Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. Gildissvið upplýsingalaga. Opinber aðili. Frávísun.


  • A 274/2007 Úrskurður frá 21. desember 2007

    Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytisins á beiðni um aðgang að verðmati á ríkisjörðinni [X]. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir almannahagsmunir vegna viðskipta. Aðgangur veittur.


  • A 272/2007 Úrskurður frá 21. desember 2007

    Kærð var synjun Hafnarfjarðarbæjar á beiðni um aðgang að tilteknu skjali með upplýsingum um álögð gjöld vegna framkvæmda á lóðinni [X] í sveitarfélaginu. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Aðgangur veittur.


  • A 269/2007 Úrskurður frá 11. desember 2007

    Kærð var synjun Orkuveitu Reykjavíkur á beiðni um upplýsingar varðandi fyrirtæki í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.


  • A 270/2007 Úrskurður frá 11. desember 2007

    Kærð var synjun Skeiða- og Gnúpverjahrepps á beiðni um upplýsingar um þá aðila sem greitt hefðu fasteignaskatt til sveitarfélagsins samkvæmt hærri gjaldstofni (svonefndum b-stofni). Tilgreining máls eða gagna í máli. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 268/2007 Úrskurður frá 30. nóvember 2007

    Kærð var synjun Heilbrigðisstofnunar Austurlands á beiðni um aðgang að skriflegum samningi stofnunarinnar við [X] um aðstöðu til sölu gleraugna á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupsstað. Mikilvægir viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A 267/2007 Úrskurður frá 30. nóvember 2007

    Kærð var synjun Neytendastofu á beiðni um upplýsingar varðandi könnun stofunnar á verðbreytingum hjá veitingahúsum. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Sjálfstætt skjal. Skráning upplýsinga um málsatvik. Tilgreining máls eða gagna í máli. Vinnuskjal. Aðgangur veittur.


  • A 265/2007 Úrskurður frá 20. september 2007

    Kærð var synjun Mosfellsbæjar, um aðgang að gögnum vegna rannsókna á tímabilinu 1994-2005, sem Mosfellsbær hafi byggt á ákvörðun sína um lagningu tengibrautar frá Helgafellslandi, um Álafosskvos að Vesturlandsvegi. Kæruheimild. Leiðbeiningar um afmörkun beiðni. Tilgreining máls eða gagna í máli. Frávísun.


  • A 266/2007 Úrskurður frá 20. september 2007

    Kærð var synjun embættis forseta Íslands um upplýsingar um nýafstaðna ferð forseta Íslands til Englands. Kæruheimild. Tilgreining máls eða gagna í máli. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frávísun.


  • A 258/2007 Úrskurður frá 3. júlí 2007

    Kærð var synjun sjávarútvegsráðuneytisins um aðgang að útskrift notkunaryfirlits kreditkorts sjávarútvegsráðherra fyrir árið 2006. Afmörkun kæruefnis. Bókhaldsgögn. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 255/2007 Úrskurður frá 3. júlí 2007

    Kærð var synjun iðnaðar- og viðskiptamálaráðuneytisins um aðgang að útskrift notkunaryfirlits kreditkorts iðnaðar- og viðskiptamálaráðherra fyrir árið 2006. Afmörkun kæruefnis. Bókhaldsgögn. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 263/2007 Úrskurður frá 3. júlí 2007

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um að láta í té afrit sjóðsbóka í evrum og dölum vegna utanumhalds sjóðs á Kabúlflugvelli í Afganistan 2004. Bókhaldsgögn. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 256/2007 Úrskurður frá 3. júlí 2007

    Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytisins um aðgang að útskrift notkunaryfirlits kreditkorts landbúnaðaráðherra fyrir árið 2006. Afmörkun kæruefnis. Bókhaldsgögn. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 264/2007 Úrskurður frá 27. júní 2007

    Kærð var synjun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. um afrit allra gagna um aðdraganda samningsgerðar fyrirtækisins við [A] ehf. um verslunarrekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf., þ.m.t. afrit af samningi milli fyrirtækjanna um reksturinn. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.


  • A 257/2007 Úrskurður frá 3. júlí 2007

    Kærð var synjun menntamálaráðuneytisins um aðgang að útskrift notkunaryfirlits kreditkorts menntamálaráðherra fyrir árið 2006. Afmörkun kæruefnis. Bókhaldsgögn. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 259/2007 Úrskurður frá 3. júlí 2007

    Kærð var synjun umhverfisráðuneytisins um aðgang að útskrift notkunaryfirlits kreditkorts umhverfisráðherra fyrir árið 2006. Afmörkun kæruefnis. Bókhaldsgögn. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 252/2007 Úrskurður frá 3. júlí 2007

    Kærð var synjun félagsmálaráðuneytisins um aðgang að útskrift notkunaryfirlits kreditkorts félagsmálaráðherra fyrir árið 2006. Afmörkun kæruefnis. Bókhaldsgögn. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 260/2007 Úrskurður frá 3. júlí 2007

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um aðgang að útskrift notkunaryfirlits kreditkorts utanríkisráðherra fyrir árið 2006. Afmörkun kæruefnis. Bókhaldsgögn. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 253/2007 Úrskurður frá 3. júlí 2007

    Kærð var synjun fjármálaráðuneytisins um aðgang að útskrift notkunaryfirlits kreditkorts fjármálaráðherra fyrir árið 2006. Afmörkun kæruefnis. Bókhaldsgögn. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 262/2007 Úrskurður frá 27. júní 2007

    Kærð var synjun Ríkisútvarpsins ohf. um aðgang að upplýsingum um heildarkostnað félagsins vegna kaupa á sýningarrétti EM í knattspyrnu og heildarkostnað vegna kaupa á sjónvarpsþáttunum Lost, Desperate Housewives og The Sopranos. Afmörkun kæruefnis. Kæruheimild. Tilgreining máls eða gagna í máli. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A 261/2007 Úrskurður frá 21. júní 2007

    Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytisins um aðgang í fyrsta lagi að yfirlitum þriggja tilgreindra mála úr málaskrá ráðuneytisins. Í öðru lagi að fjórum tilgreindum tölvubréfum og í þriðja lagi að gögnum um samskipti ráðuneytisins við hagsmunaaðila vegna samningsgerðar við Evrópusambandið um viðskipti með landbúnaðarvörur og um breytingu á lagaákvæðum um tollkvóta við innflutning landbúnaðarafurða. Afmörkun kæruefnis. Beiðni um aðgang beint að réttu stjórnvaldi. Dagbækur. Gildissvið upplýsingalaga. Mikilvægir almanna¬hagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Kæruheimild. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur að hluta. Synjun staðfest að hluta.


  • A 254/2007 Úrskurður frá 3. júlí 2007

    Kærð var synjun forsætisráðuneytisins um aðgang að útskrift notkunaryfirlits kreditkorts forsætisráðherra fyrir árið 2006. Afmörkun kæruefnis. Bókhaldsgögn. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A-251/2007 Úrskurður frá 11. maí 2007

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um aðgang að upplýsingum um aðgang að upplýsingum um samskipti Íslands við Atlantshafsbandalagið. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frávísun.


  • A-250/2007 Úrskurður frá 11. maí 2007

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um aðgang að upplýsingum um samskipti íslenskra og bandarískra stjórnvalda er varða hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frávísun. Synjun.


  • A-248/2007 Úrskurður frá 29. mars 2007

    Kærð var synjun Reykjavíkurborgar um aðgang að upplýsingum um raforkuverð Landsvirkjunar til [A] og [B]. Vinnuskjöl. Synjun staðfest.


  • A-249/2007 Úrskurður frá 29. mars 2007

    Kærð var synjun Ríkisútvarpsins um aðgang að upplýsingum um kostnað stofnunarinnar við Áramótaskaupið 2006. Afmörkun kæruefnis. Mikilvægir almannahagsmunir vegna viðskipta. Tilgreining máls eða gagna í máli. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-245/2007 Úrskurður frá 6. mars 2007.

    Kærð var synjun svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík, um aðgang og afrit af öllum skjölum og gögnum um fjármálamisferli fyrrverandi forstöðumanns á áfangastaðnum [X] sem uppvíst varð um í ágúst 2005. Einka eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Gildissvið upplýsingalaga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Bókhaldsgögn. Gögn sem bætast við mál eftir að beiðni kemur fram en áður en afstaða er til hennar tekin. Frávísun. Synjun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-246/2007 Úrskurður frá 6. mars 2007.

    Kærð var synjun fjármálaráðuneytisins um aðgang að gögnum sem farið hefðu á milli Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og ráðuneytisins vegna undirbúnings frumvarps til laga um Ríkisútvarpið ohf. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Synjun.


  • A-247/2007 Úrskurður frá 6. mars 2007

    Óskað var eftir því að kannað yrði hvort „sá listi sem tilgreindur er í kunnri Þjóðmálagrein, [X] sé enn til í íslenskum eða bandarískum gögnum .... [yfir] menn með ákveðnar stjórnmálaskoðanir er útiloka skyldi frá vissum störfum á vegum ríkisins.“ Framsending. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.


  • A-244/2007 Úrskurður frá 22. mars 2007

    Kærð var synjun framkvæmdanefndar um einkavæðingu um aðgang að fundargerðum nefndarinnar sem tengdust sölu á hlut ríkisins í sjö tilgreindum fyrirtækjum auk greinargerða matsaðila og skýrslum eftirlitsaðila. Fundargerðir. Gögn ekki í vörslum stjórnvalds. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls eða gagna í máli. Vinnuskjöl. Frávísun. Aðgangur veittur. Synjun staðfest.


  • A-243/2007 Úrskurður frá 8. febrúar 2007

    Kærð var synjun Vestmannaeyjabæjar á beiðni um tilteknar upplýsingar um bæjarstjórnarfundi og setu fulltrúa á þeim. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun.


  • A-242/2007 Úrskurður frá 8. febrúar 2007

    Kærð var synjun Vinnumálastofnunar um aðgang að upplýsingum um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks fyrir árin 2004, 2005 og 2006. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-240/2007 Úrskurður frá 14. febrúar 2007.

    Kærð var synjun fjármálaráðuneytisins um aðgang að öllum skjölum sem tengjast úrskurði eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá 14. mars 2003, þ.e. nr. 40/03, um fjármögnun og aðgerðir í skattamálum í tengslum við byggingu álvers í Fjarðabyggð, og enn fremur um aðgang að öðrum skjölum milli ESA og íslenskra stjórnvalda um fasteignagjöld Landsvirkjunar eða undanþágur fyrirtækisins frá greiðslum þeirra og annarra opinberra gjalda og skatta. Gildissvið gagnvart þjóðréttarsamningum. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls. Þjóðréttarlegar skuldbindingar. Synjun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-241/2007 Úrskurður frá 16. janúar 2007

    Kærð var afgreiðsla utanríkisráðuneytisins, dags. 11. desember 2006, varðandi afrit af bréfi þess til [X] dags. 6. nóvember 2006. Gildissvið upplýsingalaga. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Þagnarskylda. Frávísun.


  • A-239/2007 Úrskurður frá 16. janúar 2007

    Kærðar voru synjanir ríkisskattstjóra, dags. 8. og 20. nóvember 2006, á að veita tilteknar upplýsingar og staðfesta tiltekin atriði um greiðendur fjármagnstekjuskatts tekjuárið 2004. Þá var kærð synjun embættis ríkisskattstjóra, dags. 12. desember 2006, á að staðfesta tilteknar upplýsingar um greiðendur fjármagnstekjuskatts tekjuárið 2004. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frávísun.


  • A-238/2007 Úrskurður frá 16. janúar 2007

    Kærð var synjun iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins um aðgang að skýrslu, í heild sinni, sem unnin var fyrir eigendur Landsvirkjunar um verðmæti fyrirtækisins vegna sölu þess til ríkisins. Almannahagsmunir. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Synjun staðfest.


  • A-236/2006 Úrskurður frá 22. desember 2006

    Kærð var synjun Kópavogsbæjar um aðgang að uppdráttum og öðrum gögnum sem lögð höfðu verið fyrir Kópavogsbæ og tengdust byggingu fyrirhugaðs húss við [X-götu nr. Y] þar í bæ. Ekki hefur þýðingu í hvaða skyni ætlunin er að nota umbeðnar upplýsingar. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Öryggishagsmunir einstaklinga og lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-237/2006 Úrskurður frá 22. desember 2006

    Kærð var synjun velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um aðgang að fjórum þjónustusamningum við félagasamtökin [X] og einum þjónustusamningi við félagasamtökin [Y]. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-235/2006 Úrskurður frá 22. desember 2006

    Kærð var synjun Þjóðskjalasafns Íslands á beiðni um aðgang og afrit af öllum skjölum og gögnum í vörslu Þjóðskjalasafns Íslands um símhleranir, sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið afhenti safninu í júlí 2006. Aldur skjala. Framsending. Gildissvið upplýsingalaga. Skjalasöfn. Tilgreining máls. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Þagnarskylda. Öryggi og varnir ríkisins. Afhending að hluta.


  • A-234/2006 Úrskurður frá 10. nóvember 2006

    Kærð var synjun bæjarráðs Seyðisfjarðarkaupstaðar á beiðni um aðgang að upplýsingum og gögnum um samninga milli Seyðisfjarðarkaupstaðar og [A] ehf. í tengslum við fyrirhugaðar virkjanir í Fjarðará. Gildissvið laga um upplýsingamiðlun og aðgang að upplýsingum um umhverfismál. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-233/2006B Úrskurður frá 18. október 2006

    Krafist var frestunar réttaráhrifa úrskurðar í máli nr. A-233/2006, sem kveðinn var upp 27 september 2006. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Frestun réttaráhrifa. Frávísun.


  • A-233/2006 Úrskurður frá 27. september 2006

    Kærð var synjun Reykjavíkurborgar, dags. 22. mars sl. og Ríkiskaupa 2. apríl sl., á beiðni kærenda um að fá í hendur afrit samnings er Austurhöfn-TR ehf. gerði við [C] þann 9. mars sl., um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar á Austurbakka Reykjavíkurhafnar. Aðili máls. Gildissvið upplýsingalaga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Trúnaðarmál. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-232/2006 Úrskurður frá 4. júlí 2006

    Kærð var synjun Ríkiskaupa um aðgang að upplýsingum um niðurstöðu útboðs 13100 – Eldsneyti, olíuvörur og aðrar vörur þjónustustöðva, í janúar 2003. Mikilvægir almannahagsmunir vegna viðskipta. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Trúnaðarmál. Útboð. Aðgangur veittur.


  • A-230/2006 Úrskurður frá 4. júlí 2006

    Kærð var synjun sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps um afhendingu gagna úr bókhaldi sveitarfélagsins, svonefndri aðalbók fyrir árin 2002, 2003, 2004 og 2005. Gildissvið upplýsingalaga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A-228/2006 Úrskurður frá 18. júlí 2006

    Kærð var synjun Ríkiskaupa á beiðni um afrit umsagnar matsnefndar um tillögu [C] frá september 2005 í verkefninu 13571 – „Tónlistarhús, ráðstefnumiðstöð og hótel“, auk annarra gagna og bréfaskipta milli Austurhafnar-TR ehf. og Ríkiskaupa við [C]. Aðili máls. Forvalsgögn. Gildissvið upplýsingalaga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls eða gagna í máli. Trúnaðarmál. Útboð. Aðgangur veittur að hluta. Synjun staðfest.


  • A-229/2006 Úrskurður frá 4. júlí 2006

    Kærð var afgreiðsla Seyðisfjarðarkaupstaðar á beiðni um aðgang að gögnum um samskipti kaupstaðarins og [A] ehf. vegna fyrirhugaðrar virkjunar Fjarðarár í Seyðisfirði. Leiðbeiningar um afmörkun beiðni. Tilgreining máls eða gagna í máli. Frávísun.


  • A-231/2006 Úrskurður frá 4. júlí 2006

    Kærð var synjun Þingvallanefndar um aðgang að afritum gagna um sölu sumarhúsa í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Stjórnvaldsákvörðun. Þinglýsing. Synjun staðfest að hluta. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-226/2006 Úrskurður frá 14. mars 2006

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um aðgang að upplýsingum er varða vopnakaup íslenskra stjórnvalda vegna rekstrar íslensku friðargæslunnar. Umbeðin gögn aldrei verið til. Frávísun.


  • A-227/2006 Úrskurður frá 14. mars 2006

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um aðgang að upplýsingum er varða ákvörðun ríkisstjórnar um framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Minnisblöð stjórnvalds. Synjun staðfest.


  • A-223/2006 Úrskurður frá 9. febrúar 2006

    Kærð var meðferð utanríkisráðuneytisins á beiðni um aðgang að upplýsingum um árás á íslenska friðargæsluliða í Kabúl í Afganistan hinn 23. október 2004. Einkahagsmunir annarra. Gildissvið gagnvart þjóðréttarsamningum. Skjal sem kærandi hefur ritað sjálfur. Aðgangur veittur að hluta. Synjun staðfest að hluta. Frávísun.


  • A-225/2006 Úrskurður frá 9. febrúar 2006

    Kærð var synjun byggingarnefndar [A-bæjar] um afhendingu á gögnum sem lögð höfðu verið fram á fundi nefndarinnar 30. nóvember 2005. Beiðni ekki beint að réttu stjórnvaldi. Framsending. Frávísun.


  • A-224/2006 Úrskurður frá 9. febrúar 2006

    Kærð var synjun sveitarfélagsins [A] um aðgang að tilteknum gögnum sem vörðuðu viðskipti sveitarfélagsins við [B] ehf. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-222/2005 Úrskurður frá 30. nóvember 2005

    Kærð var synjun Fiskistofu um aðgang að upplýsingum um hverjir stæðu að baki viðskiptum með aflamark hinn 13. september 2004. Aflamark. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Synjun staðfest, á grundvelli upplýsingalaga.


  • A-220/2005 Úrskurður frá 16. nóvember 2005

    Kærð var synjun áfrýjunarnefndar samkeppnismála um aðgang að upplýsingum um gengistap og hækkun launa umfram neysluverðsvísitölu hjá fyrirtækjunum [X] hf. og [Y] hf. sem felldar voru út úr úrskurði nefndarinnar nr. 3/2004. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Synjun staðfest.


  • A-221/2005 Úrskurður frá 16. nóvember 2005

    Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins um aðgang að öllum gögnum sem lágu til grundvallar áliti stofnunarinnar sem fram kom í bréfi hennar til tiltekins lífeyrissjóðs. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Þagnarskylda. Frávísun. Synjun staðfest.


  • A-218/2005 Úrskurður frá 16. nóvember 2005

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um aðgang að upplýsingum um það hverjir hefðu fengið diplómatísk vegabréf og þjónustuvegabréf í tíð [X] sem utanríkisráðherra. Til vara var farið fram á lista yfir alla handhafa slíkra vegabréfa. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Frávísun


  • A-217/2005 Úrskurður frá 10. október 2005

    Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytisins um aðgang að upplýsingum um hvert lægsta, hæsta og meðalverð hafi verið í hverjum tollflokki vegna tilboða í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum annars vegar og ostum hins vegar fyrir tímabilið 1. júlí 2004 – 30. júní 2005. Innflutningur. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagmmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-219/2005 Úrskurður frá 10. október 2005

    Kærðar voru fimm synjanir framkvæmdanefndar um einkavæðingu. Úrskurðað var um fjóra kæruliði með úrskurði A-215/2005. Í þessu máli var síðasti liðurinn tekinn til úrskurðar, þ.e. synjun um aðgang að fundargerðum framkvæmdanefndar um einkavæðingu varðandi sölu á hlutabréfum ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Fundargerðir. Vinnuskjöl. Synjun staðfest.


  • A-216/2005 Úrskurður frá 14. september 2005

    Kærð var synjun heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um aðgang að gögnum er vörðuðu leyfisveitingu til framleiðslu forskriftarlyfja. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-215/2005 Úrskurður frá 7. september 2005

    Kærð var synjun framkvæmdanefndar um einkavæðingu á beiðni kæranda um a) afrit af niðurstöðum úr áreiðanleikakönnun fjárfestingabankans [Y], b) skýrslur fjárfestingabankans [Y] vegna sölu á Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf., c) gögn sem Ríkisendurskoðun voru fengin í því skyni að vinna skýrslu um einkavæðingu helstu ríkisfyrirtækja árin 1998-2003, d) öll gögn sem [Z] voru fengin til að vinna úr, þ.m.t. vinnureglur sem þeim voru settar vegna einkavæðingar Landssíma Íslands hf. og e) fundargerðir framkvæmdanefndar um einkavæðingu varðandi sölu á hlutabréfum ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Tilgreining máls eða gagna. Aðgangur veittur. Frávísun staðfest. Frávísun.


  • A-214/2005 Úrskurður frá 25. júlí 2005

    Kærð var synjun Fjársýslu ríkisins um aðgang að upplýsingum um föst laun og kjör 49 nafngreindra opinberra starfsmanna fyrir nóvember 2004. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kærufrestur. Synjun staðfest.


  • A-213/2005 Úrskurður frá 25. júlí 2005

    Kærð var synjun Flugmálastjórnar um að veita aðgang að fundargerðum aðalvarðstjórafunda hjá flugumferðarþjónustu stofnunarinnar á tilteknu tímabili. Ennfremur var kærð synjun Flugmálastjórnar um að veita aðgang að dagbókum flugturnsins í Reykjavík fyrir tiltekið tímabil. Tilgreining máls eða gagna. Synjun staðfest.


  • A-212/2005 Úrskurður frá 28. júní 2005

    Kærð var synjun skólanefndar Landakotsskóla um afhendingu á minnisblaði sem lagt hefði verið fram á fundi fulltrúa kennararáðs með skólanefnd. Gildissvið upplýsingalaga. Minnispunktar. Varðveisla gagna. Kröfu hafnað.


  • A-211/2005 Úrskurður frá 14. júní 2005

    Kærð var synjun Rannsóknarnefndar flugslysa um aðgang að umsögn nefndarinnar um drög að lokaskýrslu sérstakrar rannsóknarnefndar sem skipuð var til að rannsaka orsakir flugslyss. Jafnframt var kært að Rannsóknarnefnd flugslysa skyldi ekki taka afstöðu til kröfu hans um aðgang að öllum bréfaskriftum milli Rannsóknarnefndar flugslysa og hinnar sérstöku rannsóknarnefndar. Flugslys. Vinnuskjöl. Synjun að svo stöddu staðfest.


  • A-209/2005 Úrskurður frá 14. júní 2005

    Kærð var synjun viðskiptaráðuneytisins um afhendingu á afriti af samningi um sölu á hlut íslenska ríkisins í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-210/2005 Úrskurður frá 14. júní 2005

    Kærð var synjun landlæknisembættisins um afrit af kvörtunarbréfi sem embættinu hefði borist vegna meðferðar sem veitt væri af hálfu kæranda. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frávísun.


  • A-206/2005B Úrskurður frá 10. júní 2005

    Þess var krafist að réttaráhrifum úrskurðar í málinu A-206/2005 yrði frestað. Krafa um frestun réttaráhrifa. Kröfu hafnað.


  • A-207/2005 Úrskurður frá 10. júní 2005

    Kærð var synjun Umhverfisstofnunar um aðgang að gagnagrunni um þá sem hafa opinber réttindi sem meindýraeyðar eða garðaúðarar. Í sama bréfi var kærð synjun Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur um aðgang að gagnagrunni um þá sem hafa opinbert starfsleyfi í sömu starfsgreinum. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Framsending. Kærufrestur. Kæruleiðbeiningar. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest.


  • A-208/2005 Úrskurður frá 10. júní 2005

    Óskað var eftir því að úrskurðarnefndin tæki afstöðu til þriggja álitamála. Í fyrsta lagi hvort úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki til meðferðar kæru á þeirri ákvörðun Samkeppnisstofnunar að veita [X] aðgang að svonefndum trúnaðarupplýsingum. Voru hin tvö álitamálin skilyrt að því leyti að úr þeim yrði eingöngu leyst ef svar úrskurðarnefndarinnar við fyrsta álitaefninu væri á þá leið að nefndin tæki við kærum í málum sem þessum. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frávísun.


  • A-205/2005 Úrskurður frá 25. maí 2005

    Kærð var synjun tollstjórans í Reykjavík um upplýsingar um hvort [A], [B] og eftir atvikum fleiri aðilar hefðu fengið sömu tolla og vörugjöld, sem kæranda var gert að greiða, felld niður vegna innflutnings á sambærilegum búnaði. Jafnræðisreglan. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls eða gagna í máli. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.


  • A-206/2005 Úrskurður frá 25. maí 2005

    Kærð var synjun Vegagerðarinnar um aðgang að tilboðum [A] og [B] í liði E1, F2, A1 og L1 samkvæmt tilboðsskrá í útboði Vestmannaeyjaferju 2001-2003. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-204/2005 Úrskurður frá 27. apríl 2005

    Kærð var synjun yfirdýralæknis um að veita aðgang að öllum gögnum er fyrir lægju hjá embættinu vegna umsagna þess til landbúnaðarráðuneytisins um löggildingu tiltekinna sláturhúsa. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-203/2005 Úrskurður frá 11. apríl 2005

    Kærð var synjun yfirdýralæknis um að veita aðgang að öllum gögnum er fyrir lægju hjá embættinu vegna umsagna þess til landbúnaðarráðuneytisins um löggildingu sláturhúsa í tilteknum sveitarfélögum. Einnig var farið fram á aðgang að skýrslum vegna árlegs eftirlits með þessum sláturhúsum á yfirstandandi ári. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-201/2005 Úrskurður frá 11. apríl 2005

    Kærð var synjun Umhverfisstofnunar um aðgang að gagnagrunni um þá sem hafa opinber réttindi sem meindýraeyðar eða garðaúðarar. Einnig var kærð synjun Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur um aðgang að gagnagrunni um þá sem hafa opinbert starfsleyfi sem meindýraeyðar eða garðaúðarar. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Framsending. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Frávísun.


  • A-202/2005 Úrskurður frá 11. apríl 2005

    Kærð var synjun yfirdýralæknis um að veita aðgang að skjali, „athugasemdum á blaði“, sem fylgdi skýrslu um sláturhús [A]. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.


  • A-198/2005 Úrskurður frá 30. mars 2005

    Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytisins, um að veita aðgang að öllum gögnum um síðustu löggildingu sláturhúss [A], þ. á m. að umsögn embættis yfirdýralæknis um málið og gögnum henni tengdri. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls eða gagna í máli. Aðgangur veittur.


  • A-200/2005 Úrskurður frá 30. mars 2005

    Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytisins um að afhenda ættbók Cocker Spaniel hundsins [A]. Kærufrestur. Frávísun.


  • A-199/2005 Úrskurður frá 25. febrúar 2005

    Kærð var synjun Bændasamtaka Íslands um að veita aðgang að lista yfir greiðslumark í fjárbúskap. Jafnframt fór kærandi fram á að fá aðgang að lista yfir mjólkurkvóta allra framleiðenda á landinu. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Stjórnvaldsákvörðun. Tilgreining máls eða gagna í máli. Frávísun á báðum kröfum.


  • A-196/2005 Úrskurður frá 26. janúar 2005

    Kærð var synjun yfirdýralæknis um að veita aðgang að öllum gögnum er fyrir lægju hjá embættinu vegna umsagna þess til landbúnaðarráðuneytisins um löggildingu sláturhúsa í tilteknum sveitarfélögum. Einnig var farið fram á aðgang að skýrslum vegna árlegs eftirlits með þessum sláturhúsum á yfirstandandi ári. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Frávísun á fyrri kröfu. Aðgangur veittur skv. seinni kröfu.


  • A-197/2005 Úrskurður frá 26. janúar 2005

    Kærð var synjun Hafnarfjarðarbæjar um að veita aðgang að yfirliti yfir allar samþykktar íbúðir norðan Reykjanesbrautar. Tilgreining máls eða gagna. Leiðbeiningar um afmörkun beiðni. Frávísun staðfest.


  • A-195/2004 Úrskurður frá 30. desember 2004

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um að veita aðgang að gögnum um viðræður forsætisráðherra og utanríkisráðherra við aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna 5. júní 2003. Vinnuskjal sem stjórnvald hefur ritað til eigin afnota. Öryggi og varnir ríkisins. Samskipti við önnur ríki. Synjun staðfest.


  • A-191/2004 Úrskurður frá 22. desember 2004

    Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um að veita aðgang gögnum um árás á íslenska friðargæsluliða í Kabúl í Afganistan 23. október 2004. Vinnuskjal sem stjórnvald hefur ritað til eigin afnota. Einkamálefni einstaklinga. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Aðgangur veittur að hluta skjals.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum